Garðurinn við Hlemm - milli Rauðarárst., Laugav. og Bríetart

Garðurinn við Hlemm - milli Rauðarárst., Laugav. og Bríetart

Hvað viltu láta gera? Gefa garðinum nafn, setja upp merkingar við innganga í garðinn. Garðurinn verði snyrtur reglulega af borginni. Laga þarf innkeyrslu í garðinn vestast við Bríetartúnið. Gera þarf garðinn áhugaverðann fyrir fleiri en þá sem búa við hann. Þar mætti halda markaði og hátíðir, fá meira líf í garðinn. Hjálpa þarf sumum íbúðareigendum við garðinn að gera sína garða og hús snyrtileg. Fjölga þarf æfingatækjum og hafa betri leiðbeiningar. Auka þarf lýsingu í garðinum. Hvers vegna viltu láta gera það? Þessi garður er falin perla og gæti verið iðandi af lífi þar sem hann er rétt við Hlemm. Garðurinn þyrfti að fá nafn svo hann festist í sessi með skemmtilegur viðkomustaður á bæjarröltinu (samt ekki á nóttunni :) ). Í sumar kom enginn frá borginni til að slá, hirða beðin, klippa runnana og trén. Það þarf að vera tryggt að garðurinn sér hirtur á hverju sumri. Lýsinguna þarf að bæta og margt fleira. Margt væri líka hægt að gera í samvinnu við íbúana í kringum garðinn. *Hugmynd sameinuð við: Svæði sem markast af Katrínartúni, Rauðarárstíg og Laugavegi: https://betrireykjavik.is/post/28673.

Points

Það þyrfti að leysa bílastæðavandamál íbúanna við.garðin þannig að hægt væri að fjarlægja bílastæðin sem eru þar núna.

Myndi vilja lausnir fyrir sorpið eins og er fyrir íbúa Bríetartúns 9 og 11, þ.e tórir gámar neðanjarðar. (Er einnig algeng aðferð í mörgum borgum erlendis).

Það þarf að bæta lýsingu þarna , á daginn eru börn að leik í þessum garði en á kvöldin verður þetta skuggalegra. Ljôs myndu fæla neyslufólk frá.

Það væri gaman að hafa útigrill þarna. Einnig þarfnast þessi garður smá upplyftingu

Það væri frábært ef hægt væri að fjarlægja spennistöðina í miðjum garðinum. Hún slítur garðinn í sundur. Ef ekki er hægt að fjarlægja hana væri þá kannski hægt að hafa hana neðanjarðar? Það mætti gera fallefan hól ofan á henni.

Æfingatækin í garðinum eru gagnlaus fyrir flesta, nema kannski eitt, skíðatækið. Merkingarnar passa ekki við tækin! Ég á enn eftir að finna góðan hreystivöll miðsvæðis í Reykjavik. en flest eru þau illa hönnuð fyrir hin venjulega borgara. vantar almennileg útsvæði fyrir fólk að þjálfa sig. Lýsingin er mjög slæm í garðinum og ruslið fýkur út um allt. það mætti setja grendarstöð undir nýjan Hreystivöll sem gæti nýst öllum umhverfis garðinn.😁

Mjög góðar hugmyndir, það er mikil þörf á að bæta lýsingu - hálf drungalegt að ganga í gegnum garðinn á morgnana og á kvöldin.

Að mínu mati mætti minnka garðana við húsin og stækka þannig almenningsgarðinn. Garðarnir við húsin eru of stórir miðað við hvað þeir eru yfirleitt lítið notaðir. Held að flestir íbúar myndu vilja slá aðeins minni bletti.

Garðurinn heitir Skúlagarður

Þetta eru góđar hugmyndir

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information