Yfirbyggt svið í Grundagerðisgarð*

Yfirbyggt svið í Grundagerðisgarð*

Hvað viltu láta gera? Forsvarsmenn Foreldrafélags Breiðagerðisskóla óska eftir yfirbyggðu sviði í Grundagerðisgarð. Grundagerðisgarður er rótgróinn og fallegur garður staðsettur í póstnúmeri 108. Garðurinn er eftirlætis staður margra íbúa Háaleitis-og Bústaðahverfis og nýttur allt árið af íbúum, skóla og frístundastarfi í hverfinu. Ósk okkar er að geta nýtt garðinn enn betur og teljum við spennandi að bjóða íbúum uppá yfirbyggt, skjólgott svið sem nýta má á fjölbreyttan hátt íbúum til heilla. Sem dæmi má nefna að nýta sviðið til útináms þar sem garðurinn er í göngufæri frá bæði leik-og grunnskóla. Við sjáum fyrir okkur að svið sem þetta myndi styðja við fjölda viðburða sem haldnir eru í garðinum sem og kosti þess að geta nýtt sviðið til að auka hreyfingu og heilsu fyrir börn, ungmenni og aðra íbúa. Hvers vegna viltu láta gera það? Við viljum efla félagsauð íbúa, styðja við dýrmætt félagsstarf í hverfinu. Með yfirbyggðu sviði í Grundagerðisgarði skapast tækifæri fyrir íbúa til að upplifa yfirbyggt rými þar sem fólk hittist, hefur samskipti og tengist skapandi, þvert á aldur, kyn og félagslegan bakgrunn. Viljum við styðja við fyrirmyndar hverfisbrag og fjölga samverustundum sem gefa færi á að rækta tjáskipti í okkar nærumhverfi og ósk okkar að fjölga stöðum sem bjóða uppá á slíka örvun. *Hugmynd sameinuð við Útinám: https://betrireykjavik.is/post/38873

Points

Nýtist á öllum tímum ársins og fyrir alla í hverfinu.

Algjörlega frábær hugmynd. Slíkt svið skapa fjölmarga nýja og góða nýtingarmöguleika fyrir Grundargerðisgarð og lífga upp hann. Maður sér fyrir sér að leik- og grunnskólar gætu nýtt sér þetta, en einnig væri hægt að nota það fyrir ýmis konar sýningar, félagsstarf, afmæli og ýmis önnur tilefni, t.d. á tyllidögum.

Flott hugmynd. Gæti nýst öllum aldurshópum ungum sem öldnum.

Svona svið er notað við oll tækifæri á Þórsplani í Hafnarfirði. Þetta er mjog goð hugmynd.

Kærkomin viðbót sem eykur notagildi garðsins og gerir hann vonandi enn meira lifandi. Góð hugmynd.

Frábær hugmynd, mjög margir sem geta nýtt sér þetta. Frábært fyrir skólana, leikskóla, allskonar félags-og íþróttastarf fyrir allan aldur. Eflir góðar samverustundir óháð árstíma.

Þetta er frábært hugmynd, mikil þörf fyrir slíkt í hverfinu. Getur nýst vel öllum aldurshópum. Myndi efla samskipti og góða stemningu innan svæðisins. Miðsvæðis og virkilega skemmtilegt svæði fyrir slíkt.

Frábær hugmynd! Vel er þörf á slíku og mun án efa vera heilmikil nýting á frá leik- og grunnskólum hverfisins sem og öðrum hverfisbúum.

Frábær hugmynd, yfirbyggð aðstaða yrði til þess að hægt væri að nýta Grundargerðisgarð í mun meiri mæli, allt árið um kring, í skjóli fyrir veðri og vindum.

Frábær hugmynd.

Líst mjög vel á þetta

Lítið svið gerir kennurum leik- og grunnskóla kleift að nota skjólgóðan stað við útikennslu og útinám.

Eykur notagildi garðsins og þar með fjölbreytni hverfisins. Hægt að nýta við t.d. afmælisveislur, barnaleiksýningar, leikskóla og grunnskólastarf, tónleikahald og fl.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information